Færsluflokkur: Dægurmál

Jólasveinarnir eru Íslenskir.

Þessi frétt sýnir svo ekki verður umvillst að jólasveinarnir eru Íslenskir hrekkjóttir pörupiltar, og heimsbyggðin má þakka fyrir við sleppum systrum þeirra ekki lausum þá fyrst yrði nú kaos.  Ég tala nú ekki um ef við hættum að tala bara um þessa 13 sem Jóhannes úr Kötlum gerði ódauðlega og færum að nota öll nöfnin þá erum við farin að tala um 80 plús sveina og annað eins af sveinkum sem þýðir að börnin þurfa að fara setja skóinn út í glugga í júlí.

Ég er nokkuð viss um að ef við myndum hóta að siga þessum flokk á Breta og Hollendinga þá myndi IceSave hverfa eins og dögg fyrir sólu.


mbl.is Jólasveinar réðust á vaktmann við sænsku höllina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ESB í hnotskurn.

Evrópusambandið stundar nýlendukúgun eins og hún hefur verst verið.  Reyndar grunar mig að þetta sé í þeirra huga lið til að geta byrjað að veiða við Ísland og Færeyjar og ef / þegar makríllinn fer á sínar fornu slóðir aftur þá munu þeir benda á að þeir séu með veiði reynslu og heimta aðrar tegundir í staðinn.


mbl.is Hóta þvingunum vegna makríls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbyggðin hefur ekki lengur efni á Höfuðborgarsvæðinu.

Það er orðið ljóst að landsbyggðin verður að fara að losa sig við þetta dýra höfuðborgarsvæði.
mbl.is Mótmælir vegtollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur verið!!!!!!!

Getur verið að Wikileaks sé í raun leið til að skaffa sér starf og laun við að gera eitthvað sem ekki er erfitt og menn hafa gaman að.  Sé í raun einskonar svikamilla.  Alla vega hafa þeir ekki komið með neitt sem kemur manni að óvart eða maður vissi ekki fyrir.
mbl.is Hóta Visa málsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur landsbyggðin efni á höfuðborgarsvæðinu?

Hefur landsbyggðin efni á því að fræg andlit af höfuðborgarsvæðinu séu þeir sem eigi að koma með tillögur að stjórnarskrá?

Væri kannski rétt að nota þá 6 sem áttu að fara í kynjaleiðréttingu til að fá inn fólk af landbyggðinni eða þarf landsbyggðin að segja sig úr lögum við Reykjavík og kragann?


mbl.is 25 kjörin á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í fyrstu bekkunum en í 9. og 10. bekk það er allt annað mál.

Stjórnarskáránna á að kenna í efstu bekkjum grunnskóla en hún hefur ekkert að gera í fyrstu bekkina.
mbl.is Stjórnarskráin verði skyldunám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þannig fór það.

Landsdómur er orðinn vanhæfur í þessu máli þannig að það er búið.
mbl.is Átelur vinnubrögð landsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki nema tæp ein ferð umhverfis hnöttinn

19.500 sjómílur eru ekki nema tæplega ein ferð krinum hnöttinn sem er eins og segir í fréttinni 21.600 sjómílur eða um 40.000 kíómetrar.
mbl.is Ægir snýr heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta eru vinnubrögðin á mbl þá er ekki von á góðu.

Sprengjuvörpur eru notaðar til að skjóta þar til gerðum sprengjum, en þeim er yfirleitt aldrei skotið.


mbl.is Skjóta sprengjuvörpum frá Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta frétt?

Svona í alvöru, má Jón Gnarr ekki lengur fá flís an þess að það sé frétt á öllum miðlum í landinu?
mbl.is Fær sýklalyf í æð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 70805

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband