1.6.2008 | 17:24
Kæri Björn
Það hefði ekki breytt neinu þetta varalið þitt og ég skil ekki þessa þörf þína fyrir varalið þegar þú getur ekki látið aðalliðið fá mannsæmandi vinnuaðstöðu né laun, og þegar ég er að tala um vinnuaðstöðu þá er ég ekki að tala um rafbyssur og vopn. Heldur meira svona bíla og nægan mannafla til að menn séu ekki örþreyttir á vöktum. Þessi aðgerð í skjálftunum gekk vel án varaliðs en það var kannski spurning hvort menn gengu of langt í að senda frumviðbragðsliðin af höfuðborgarsvæðinu, hefðu kannski átt að láta björgunarsveitinar nægja það er sjálfboðaliðana. Já Björn þannig er þetta ódýrara.
Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
einarstrand
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allan tíman var til staðar borgaralegt varalið skipað sjálfboðaliðum, en þá á ég við alla þá íbúa hér á Suðvesturhorninu sem héldu sig á mottunni á meðan stór hluti lögregluliðsins var upptekinn fyrir austan fjall. Ég veit ekki til þess að það hafi þurft að kalla neinn út sérstaklega til þess að allt færi friðsamlega fram rétt eins og á venjulegum degi á meðan hjálparstörf stóðu yfir, enda var mönnum líka brugðið hér við hristinginn og hugur flestra hjá íbúum Suðurlandsundirlendisins. Við Íslendingar erum nefninlega aldrei samhentari heldur en einmitt þegar náttúruöflin sýna okkur mátt sinn og megin, af því megum við sko vera stolt. Sjálfur fór ég t.d. út úr bænum og hélt norðaustur á bóginn þar sem löggurnar voru síst uppteknar vegna jarðskjálfta enda var víða sýnilegt umferðareftirlit á vegunum. Eins og fram kom annarsstaðar á blogginu þá væri miklu meira vit í að styrkja og efla hjálparsveitirnar sjálfar, frekar en að fjölga þessum blessuðu laganna "vörðum" sem ráðast svo kannski bara á unglinga í kjörbúðum, spreyja piparúða framan í saklaust fólk á bensínstöðvum, fara með samsæri og tilhæfulausum ásökunum gegn fólki sem þorir að segja upphátt skoðun sína á umhverfismálum, hnýsast ítrekað með ólöglegum hætti í stjórnarskrárvarið einkalíf fólks, og almennt hafa grundvallarréttindi samborgaranna að engu. Af slíkum óþverravinnubrögðum íslenskrar lögreglu hef ég ítrekaða persónulega reynslu af misslæmu tagi auk þess sem öll tilvikin sem ég nefndi hér á undan eru staðfest og skjöluð!. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annað verður maður að taka þessi ummæli Björns eins og hvern annan fasista-áróður sem hann lætur frá sér fara, og í þetta sinn af fullkomnu virðingarleysi fyrir því áfalli sem dundi á Sunnlendingum. Megi það verða honum til ævarandi minnkunar að hafa ætlað að nota þessar hamfarir sem enn eitt tilefnið til slíkrar áróðursstarfsemi fyrir öfgasinnaðri hugmyndafræði sinni. Fyrst honum þykir hugmyndir um lögregluríki svona heillandi ætti hann bara að flytja vestur um haf í það "sæluríki" öfgasinnanna og láta okkur friðelskandi Íslendinga í friði, um aldur og ævi!!! A.m.k. ráðlegg ég honum að vera ekkert að heimsækja Selfyssinga á næstunni... ég held þeir vilji miklu frekar fá aðstoð við að laga húsin sín en fá yfir sig meiri löggufasisma en nú þegar viðgengst hér á landi.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 12:27
Heyr heyr Guðmundur! Frábær pistill.
Gunnar (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 18:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.