Er þetta frétt?

Svona í alvöru, má Jón Gnarr ekki lengur fá flís an þess að það sé frétt á öllum miðlum í landinu?
mbl.is Fær sýklalyf í æð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta er rétt þá er ríkið bótaskylt vegna rýrnunar eigna vegna verðbólgu.

Þessi kenning sýnir hversu mikil firring er komin í lögfræðina.  Ef þetta er rétt hjá honum þá er ríkið í raun þegar orðið bótaskylt gagnvart lánþegum vegna þeirrar eignaupptöku sem hefur skapast vegna óeðlilegrar verðbólgu og hrunsins á fasteignamarkaðnum.  Í örðulagi má segja að ef við færum niður lánin þá sé verið að bjarga fjármagnseigendum frá meira tjóni en þeir hafa þegar lent í.

En það er sama hvernig maður lítur á málið þá á téður Karl Axelsson að skila inn lögmanns réttindunum sínum, því hann skortir hæfileikann að sjá það augljósa að ef ekkert er að gert þá verður tjónið fyrir alla enn meira en það er orðið.

Og ef ég man rétt þá skapar aðgerðaleysi bótaskyldu líka.


mbl.is Niðurfærsla talin bótaskyld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko búnir að fá stefnuna frá flokknum.

Þá er búið að virkja verkalýðshreyfinguna gegn fólkinu í landinu, skyldi þessum forustumönnum aldrei koma til hugar að hugsa, það verður að vera fólk eftir til að nota þessa sjóði það má ekki allt vera búið að fremja sjálfsmorð vegna þess að það sér ekkert ljós í sínum málum.  Reyndar má segja að það verði engir sjóðir eftir ef við gerum ekkert í að leiðrétta skuldir.
mbl.is „Aðför að lífeyrissparnaði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna verður að fara frá.

Ef Jóhanna og CO segja ekki af sér fljótlega þá óttast ég að búsáhaldabyltingin eins og barnaleikur í samanburði við það sem á eftir að gerast.

Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn er úrræðalaus og vanhæf, og það er spurning hvort Jóhanna lendi ekki fyrir landsdómi vegna aðgerðarleysis, aðgerðaleysis sem er að yfirlögðu ráði og af ráðnum hug.


mbl.is Almenn niðurfærsla skulda ólíkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gera ekkert er besta leiðin til að fara með allt til glötunar.

Það er til leið sem er sennilega betri en niðurskurður á höfuðstól og það er að færa niður raunvextina á húsnæðislánum úr því sem þeir eru, sem er 4,15% og upp í um og yfir 6%, niður í 2% sem er sennilega eðlileg ávöxtun á húnæðislánum og alveg nóg ávöxtun fyrir lífeyrissjóði þetta myndi þýða 36% + lækkun á greiðslubyrði en til að peningaflæðið í lífeyrissjóðina myndi ekki minnka of mikið þá er spurning um að lækka greiðslubyrðina bara um 20% en nota það sem útaf stendur til að greiða höfuðstólinn hraðar niður.  Það sem er skárra við þessa aðferð en flatann niðurskurð á höfuðstól er að eigið fé lífeyrissjóðanna, íbúðarlánasjóðs og banka lækkar ekki við þetta heldur fá þeir ekki eins mikla ávöxtun á það, en samt fær allur almenningur leiðréttingu, auðvitað dugar þetta ekki öllum og það verða að vera sértækar aðgerðir með.

En ef við gerum ekkert þá mun allt kerfið hrynja aftur og hverjir fara þá fyrir dóm?


mbl.is Flatur niðurskurður hjálpar ekki þeim verst stöddu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hélt ég að bara nasistum dytti í hug.

Núna eru Jóhanna og Össur að bjarga sjálfum sér og Atli og CO eru nógu mikil fífl til að taka þátt í þessu.  Ég hef alltaf sagt það og segi það enn allir þeir sem hafa setið á þingi síðan 1990 eiga að víkja þaðan vegna þess að þeir eru óhæfir.

 Ef þetta verður afgreitt svona þá er líka eins gott að við minnkum réttarvernd þeirra sem sitja á þingi og hafa setið þar til að gefa almenningi möguleika á að draga þá fyrir dómstóla sem einstaklinga án þess að það þurfi að koma til kasta þingsins (svipta þá þinghelgi).

Reyndar held ég að ef einhver yrði dæmdur fyrir landsdómi þá yrði það versta réttarmorð Íslandssögunar og að Atli sem lögfræðingur skuli ekki sjá það sýnir hvað menn sleppa vel í náminu í lögfræðinni eða er það kannski ónýtt?


mbl.is Kosið um hvern og einn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmm trúnaður!!!!!!!

Er einhver að fara frjálselaga með sannleikan og þarf því trúnað?
mbl.is Trúnaði aflétt að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum þarf að gera rétt.

Þegar Atli lauk við að mæla fyrir þingsályktunartillögunni, þá átti Atli að axla sína ábyrð og segja af sér eins og allir þeir sem sátu á þingi í hruninu og fyrir hrun. 
mbl.is Þungbær skylda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læra að nota rétta íslensku.

Þetta heita flugskeyti, loftskeyti eru send með loftskeytatækjum á morsi það er menn nota morsstafrófið,  þar sem td S er þrjú stutt og O er þrjú löng.
mbl.is Flugskeytum skotið frá Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Jón að verða eins og týpískur íslenskur stjórnmálamaður?

Íslenskir stjórnmálamenn hafa nokkuð lengi misskilið starf sitt og halda að það felist í því að ráða, en sannleikurinn er sá að það snýst um að ná breiðri samstöðu um það sem gera þarf.  Ekki bara þvinga fram vilja lítils meirihluta.  Gott dæmi um þetta er umræðan um Reykjavíkurflugvöll sem ýmsir fulltrúar í borgarpólitíkinni telja einkamál Reykvíkinga en eru menn ekki að gleyma þjónustuhlutverki höfuðborgarinnar við alla landsmenn.  Væri til dæmis ekki rétt af flugvöllurinn á að fara að nýja hátækinsjúkrahúsið yrði þá flutt nær Keflavík til að það sé nær flugvelli?
mbl.is Sýni auðmýkt en fæ töffaragang á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband