11.1.2011 | 20:58
Hefur landsbyggðin efni á höfuðborgarsvæðinu?
Á höfuðborgarsvæðinu búa núna tveir af hverjum þremur íbúum þessa lands og þeir sem þar búa hafa töglin og halgdirnar í stjórn landsins. Þetta fólk telur að á landbyggðinni eigi að vera rómantískt sveitaþjóðfélag sem byggi nær eingöngu á ferðaþjónustu og afturhvarfi til fortíðar, sem kannski er gott og blessað í hófi.
En núna er svo komið að við sem búum á landsbyggðinni höfum ekki efni á að hafa svona qerulanta við völd, við höfum ekki efni á að vera í tengslum við Stór Reykjarvíkursvæðið sem hefur síðast liðin 80 til 100 ár mergsogið landið. Rafvæðing Reykjavíkur var niðurgreidd af ríkinu mun meira en annarsstaðar einnig hitaveituvæðingin og núna er svo komið að mest allur inn og útflutningur fer um Reykjavík og hvað á að gera þá? Jú það á að leggja sérstakan vegatoll á vegi til og frá Reykjavík.
Síðan ætlar Svandís Svarvars að friða allt landið til að ekkert sé hægt að byggja upp á landsbyggðinni.
Það er komið að því að við segjum skilið við höfuðborgarsvæðið, og það er tiltölulega einfalt. Við lokum við Kúagerði Krísuvík, Litlu Kaffistofuna, á Mosfellsheiði og við Hvalfjörð. Vissu lega eru miklar stjórnstöðvar fjarskipta í Reykjavík en þar eru engar náttúruauðlindir nema ca 50% af heitavatninu og engin fiskimið og fljótlega enginn flugvöllur því Gnarrinn vill hann jú í burtu. Ég segi losum okkur við höfuðborgarsvæðið og bullarana sem eru að stjórna þar og förum að lifa mannsæmandi lífi á landsbyggðinni.
P.S. Steingrímur J og fleiri þingmenn mega vera eftir þarna því við höfum ekkert við þá að gera.
![]() |
Rannsóknarleyfi ekki nýtt að svo stöddu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.12.2010 | 16:22
Jólasveinarnir eru Íslenskir.
Þessi frétt sýnir svo ekki verður umvillst að jólasveinarnir eru Íslenskir hrekkjóttir pörupiltar, og heimsbyggðin má þakka fyrir við sleppum systrum þeirra ekki lausum þá fyrst yrði nú kaos. Ég tala nú ekki um ef við hættum að tala bara um þessa 13 sem Jóhannes úr Kötlum gerði ódauðlega og færum að nota öll nöfnin þá erum við farin að tala um 80 plús sveina og annað eins af sveinkum sem þýðir að börnin þurfa að fara setja skóinn út í glugga í júlí.
Ég er nokkuð viss um að ef við myndum hóta að siga þessum flokk á Breta og Hollendinga þá myndi IceSave hverfa eins og dögg fyrir sólu.
![]() |
Jólasveinar réðust á vaktmann við sænsku höllina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2010 | 11:09
Þetta er ESB í hnotskurn.
Evrópusambandið stundar nýlendukúgun eins og hún hefur verst verið. Reyndar grunar mig að þetta sé í þeirra huga lið til að geta byrjað að veiða við Ísland og Færeyjar og ef / þegar makríllinn fer á sínar fornu slóðir aftur þá munu þeir benda á að þeir séu með veiði reynslu og heimta aðrar tegundir í staðinn.
![]() |
Hóta þvingunum vegna makríls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2010 | 19:15
Landsbyggðin hefur ekki lengur efni á Höfuðborgarsvæðinu.
![]() |
Mótmælir vegtollum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2010 | 16:21
Getur verið!!!!!!!
![]() |
Hóta Visa málsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.11.2010 | 21:24
Hefur landsbyggðin efni á höfuðborgarsvæðinu?
Hefur landsbyggðin efni á því að fræg andlit af höfuðborgarsvæðinu séu þeir sem eigi að koma með tillögur að stjórnarskrá?
Væri kannski rétt að nota þá 6 sem áttu að fara í kynjaleiðréttingu til að fá inn fólk af landbyggðinni eða þarf landsbyggðin að segja sig úr lögum við Reykjavík og kragann?
![]() |
25 kjörin á stjórnlagaþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.11.2010 | 15:23
Ekki í fyrstu bekkunum en í 9. og 10. bekk það er allt annað mál.
![]() |
Stjórnarskráin verði skyldunám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2010 | 16:26
Jæja þannig fór það.
![]() |
Átelur vinnubrögð landsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2010 | 17:37
Þetta er ekki nema tæp ein ferð umhverfis hnöttinn
![]() |
Ægir snýr heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2010 | 21:38
Ef þetta eru vinnubrögðin á mbl þá er ekki von á góðu.
Sprengjuvörpur eru notaðar til að skjóta þar til gerðum sprengjum, en þeim er yfirleitt aldrei skotið.
![]() |
Skjóta sprengjuvörpum frá Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
einarstrand
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 70776
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar