Já þetta er teraklúður.

Þetta er álíka og slökkviliðið hefði fengið eina 1 ml sprautu til að slökkva í Gúmívinnustofunni á sínum tíma og hefði þurft að hlaupa með hana í Elliðaárnar til að sækja vatn.
mbl.is Fjöldinn sem þarf greiðsluaðlögun vanmetinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki til peningur fyrir fólkið!!!!!

En það er hægt að ausa 70 milljónum í svona ráðgjöf, frá skoðana systur Steingríms og Jóhönnu.  Auðvitað er það ekki spilling og rétt að hækka skatta svoldið svo hún geti haf það betra á eftirlaunum.  Jóhanna og Steingrímur gerið okkur nú greiða og látið ykkur hverfa því þið eruð "over the hill".
mbl.is Joly sérstakur ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er augljós að Gylfi á að segja af sér.

Það að Gylfi noti ASÍ til að styðja við bakið að flokki sínum Samfylkiningunni er algjörlega út í hött og hver siðaður maður myndi segja af sér þegar í stað.
mbl.is Engin flokkspólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Menntamálaráðuneytið bregst þá er að snúa sér til Vinnumálastofnunar.

Þetta mál er sennilega ekki eingöngu á forræði Menntamálaráðuneytisins heldur einnig á forræði Vinnumálastofnunar og heyrir undir vinnuverndarlög.  Skólinn er vinnustaður þess sem fyrir árásinni varð og fleirri sem hugsanlega eru í sömu hættu, þannig að ég legg til að menn blandi þeim í málið.


mbl.is Svekkt og sár yfir niðurstöðu ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi Magnússon!!!

Hér sýnist mér að ætti að vera komið að leiðarlokum hjá okkar ágæta viðskiptaráðherra og hann ætti að sjá sóma sinn í að fara aftur að kenna því ekki er hann hæfur í að stjórna.  Alla vega ekki í krísustjórnun og lámarka skaða.  Það er líka stór spurning hvort ekki sé rétt að setja alla stjórnmálamenn í frí því það sem þeir eru búnir að keppast við að gera síðan í október að er að gera illt verra, eiginlega eru búnir að vera hérna Ólympíuleikar í að gera illt verra og metin hafa fallið hvert af öðru.  Gullið er samt enn þá hjá stjórnmálamönnunum, silfrið hjá fjölmiðlunum og bronsið hjá hagfræðingum og öðrum sérfræðingum.


mbl.is Tilfinningaríkur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur.

Eru blaðamenn mbl.is alveg án almennrar þekkingar Herkules flugvélar verða seint kallaðar herþotur á íslensku.
mbl.is Þyrla hrapaði í hafið við Nýfundnaland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þarf að eyða miklu í að rannsaka?

Hvað þarf að eyða miklu í að rannsaka það sem er augljóst?  Það er augljóst að stjórnmálamennirnir eru sekir um vanrækslu í starfi og á það við þá alla, en samt eru þeir að sækjast eftir endurkjöri og fá stuðning innan sinna flokka.  Það sýnir að flokkakerfið er rotið niður í rót og við verðum að losa okkur við það og það verður ekki gert með stjórnarskrár breytingum sem þessir flokkar standa að.

Forsetinn er spilltur og hefur sýnt það aftur og aftur, einnig eru æðstu embættismenn spilltir og verða að víkja.  En fyrst og fremst verðum við að losna við alla þá sem eru á þingi núna og fá inn ferskt blóð sem getur farið að vinna, einnig verður setja í lög þá reglu að enginn megi sitja á þingi lengur en 8 ár á æfi sinni, einkum til að koma í veg fyrir endurvinnslu eins og með Jón Baldvin.

 


mbl.is Joly: Leita þarf til erlendra sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki veit blaðamaðurinn mikið um þjóðbúninga.

Á myndinni sem fylgir fréttinni eru eingöngu íslenskir búningar en í texta fréttarinnar er látið að því liggja að svo sé ekki.


mbl.is Konur sýndu þjóðbúninga frá sínu landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grundvallar ranghugsun.

Menn eru að hugsa þetta rangt í grundvellinum, þetta kostar nefnilega bara peninga sem hafa ekki verið til og munu aldrei verða til, peninga sem urðu til í loftbólu.

Þetta er hættan þegar menn sem eru samdauna gamla kerfinu eins og hag- og viðskiptafræðingar eru látnir stjórna viðreisninni.

Í raun sýna þessi ummæli Steingríms að hann er ekki hæfur í sínu starfi.


mbl.is 20% niðurfærsla 1.200 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband