24.2.2009 | 15:38
Vanhæfir hagfræðingar
Það að færa húsnæðislán niður um 20% er í raun bara að klippa af vísitölu síðasta árs þannig að ef það setur okkur á hausinn þá er eitthvað að.
Málið er að þeir hagfræðingar sem eru ríkisstjórninni til ráðgjafar hafa meira áhuga á að bjarga kerfinu heldur enn að bjarga þjóðinni, enda aldir upp við þá þráhyggju að vextir geti orðið til úr engu.
Það sem þarf að gera núna og gera strax er að færa lánin niður um 20% þó að hámarki kannski um 5 - 10 milljónir og síðan að lækka vextina í 2 - 2,5 %. Auðvitað lítur þetta illa út þegar maður reiknar en þetta er samt bara bókhalds leikfimi, það sem svo græðist við þetta er að fólk hefur aftur peninga til að láta framkvæma fyrir sig sem mun valda því að hjólin fara að snúast. En það sem verður að passa er að við verðum að halda áfram að handstýra genginu svo við missum ekki verðmætin úr landi.
Til viðbótar þessu verðum við að gera kröfu um að þeir sem eiga kröfur á okkur í formi Icesave og krónubréfa sýni framá hvernig þeir eignuðust þessa peninga því þá má gera ráð fyrir að þó nokkrir af kröfuhöfunum láti sig hverfa vegna þess að þeir eru í peningaþvætti.
![]() |
Setur Íbúðalánasjóð á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2009 | 13:26
Bíðum við hverju á það að bjarga?
Þetta er eitt það vitlausasta sem ég hef heyrt því þetta myndi ekki lækka mánaðarlega afborganir neitt að ráði eða max um 8% mun nær væri að fella niður verðbæturnar eða enn frekar að lækka vextina niður í ca 1 - 2%
![]() |
Vilja að lánstími verði tvöfaldaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.2.2009 | 11:40
Sameinuðu Þjóðirnar eru búnar að vera.
Það er augljóst að Sameinuðu Þjóðirnar eru búnar að vera og munu líða undir lók eins og þjóðabandalagið á sínum tíma. Það er rétt að minna á að þetta er sama nefndin og sagði að kvótakerfið væri mannréttindabrot.
![]() |
Hrósað fyrir dauðarefsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2009 | 10:41
Eru þau ekki frekar skortur á sjálfsgagnrýni?
Ég vill líkja ástandinu hérna við ástandið í fjölskildu með fjögur börn allir með farsíma. Einn mánuðinn þá kemur símreikningur uppá milljón allir með 100.000 nema eitt barnið er með 500.000, símunum er lokað því ekki er hægt að borga, og börnin skamma mömmu og pabba og sérstaklega pabba fyrir að hafa ekki haft eftirlit með því hvað var miklu eytt.
Við eyddum um efni fram sem þjóð, sumir mikið aðrir minna, og fáeinir jafnvel ekki neitt, við viljum draga einhverja til ábyrðar og þá auðvitað þá sem mest bar á í eyðslunni og auðvitað líka ríkisstjórn og Alþingi, og látum sjálfskipaða dómara og fjölmiðla draga okkur á asnaeyrunum í því.
Og hvers vegna segi ég draga okkur á asnaeyrunum, jú þeir sem eru að stjórna þessu núna tóku margir þátt í því ásamt fjölmiðlum að dásama útrásina og koma í veg fyrir að hægt væri að fylgjast með hvað væri verið að gera með því til dæmis að mótmæla lögum um fjölmiðla.
Við ættum að líta okkur nær og spyrja, ef Alþingi er óhæft núna erum við þá ekki líka óhæf til að kjósa því við berum öll einhverja ábyrð.
![]() |
Rof milli þings og þjóðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 13:51
Liggur vandinn kannski í heilsuhagfræðinni.
Liggur vandinn kannski einmitt í því að við erum ekki að reka samfélag á samfélagslegum nótum heldur á nótum fyrirtækis sem reiknar allt í peningum en ekki í umhyggju og bættri líðan.
Heilsuhagfræði og heilsuverkfræði eru efalaust ágætar greinar til að búa til störf í háskólum við kennslu en það er ekki eins víst að þær skili betra heilbrigðiskerfi og reyndar nokkuð víst að þær gera það ekki því það er svo miklu auðveldara að reikna það út langt frá kerfinu hvað hægt er að gera til að spara heldur ef maður sér kúnnana sem mörgum hverju líður illa.
Ásta spörum í heilbrigðiskerfinu með því að reka hagfræðingana í ráðuneytinu og millistjórnendurnar á heilbrigðisstofnununum en höldum þjónustunni óbreyttri, já og hættum að borga strafmannaleigum fyrir fólkið ráðum það beint.
![]() |
Tímaspursmál hvenær starfsemi á St. Jósefs yrði hætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.1.2009 | 14:32
Er Vilhjálmur trúverðugur í þessu?
![]() |
Vilhjálmur: Ekki rétt að kenna bönkunum um allt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 09:22
Hvað er að verða að hjá Mogga
![]() |
Styttist í embættistöku Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2008 | 20:01
Að verðlauna hugmyndafræðingana.
![]() |
Framlög til HÍ hækki um 130 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.12.2008 | 20:49
Ættu kannski frekar að byðjast afsökunar.
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga ætti kannski frekar að biðjast afsökunar á framferði séttanna og þegja svo frekar en að koma fram sem einhver bjargvættur.
Mér finnst þetta í raun hámark hræsninar þó vissu lega hafi ekki allir félagsmenn komið að bullinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2008 | 08:42
Að dýpka kreppuna.
![]() |
Hvar liggja endimörk hagræðingar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
einarstrand
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar