Er þetta ekki bara einfalt.

Væri ekki einfaldast að draga skipið á flot (þegar búið er að ganga úr skugga um að það flýtur) í stað þess að vera eyða tíma í jappl og jamml og fuður.
mbl.is Aðstæður og mengunarhætta metin í Hvammsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónuvernd!!!!!!!!!

Þegar stofnanir eins og persónuvernd eru illa mannaðar þá verða svona slys.  Það er nefninlega spurning hvort 30 ár séu nógu langur tími til að geyma lyfjaupplýsingar einmitt vegna þess hvers eðlis þær eru og hversu mikilvægt það getur verið í læknismeðferð að hafa alla myndina.  Einnig eins og landlæknisembættið bennti á þá er ekki hægt að finna langtíma aukaverkanir lyfja nema að hafa langtíma persónurekjanlegar upplýsingar.

Það er auðsjáanlegt að Persónuvernd er stofnun á villigötum og hugsanlega ónauðsinleg stofnun sem best væri að leggja niður og eyða þeim fjarmunum sem í hana fara í til dæmis að byggja upp eða kaupa eytthvað sem leysir Sögukerfið af hólmi.


mbl.is Lög um varðveislutíma lyfja ekki á réttum forsendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir á aðra frétt fyrir rúmlega 100 árum

Árið 1880 ritar Jón Ólafsson í blað sitt Skuld undir fyrirsögninni Slysför"

Rétt áður en póstskipið fór að heiman siðast, vildi það slys til, að dr. Grímur Thomsen féll á hesti niður um ís á Lambhúsatjörn á Álftanesi og - drukknaði ekki.
Íslands óhamingu verður allt að vopni!""


mbl.is Hluti loftsins í Evrópuþinghúsinu í Strassborg féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er ég viss um að það sé til bóta.

Ef við lækkum hámarkshraðann þá minnkar afkastageta vegarinns og þar með eykst sá tími sem menn eru að aka bil við bíl og þá er mest hættan á slysum þannig að það er ekki víst að þetta sé einhver lausn, eina raunverulega lausnin er 2 + 2.  En svo má spurja hvort lög um hámarkshraða á Íslandi séu meingölluð þar sem hér eru oftast 1 + 1 vegir, þar á ég við að við erum með tvo hámarkshraða í gangi á sama veginum það er 90 og svo 80 fyrir ökutæki yfir 3500 kg að skráðri heildarþyngd eða er með eftirvagn eða tengi tæki.  Þetta er ávísun á framúrakstur og hann er ávísun á slysahættu.  Persónulega myndi ég halda að 90 væri í lagi á suðurlandsvegi passa þá uppá að menn haldi þeim hraða og séu hvorki að fara mikið yfir eða ekki síst undir.


mbl.is Lækka þarf hámarkshraðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er ástæða til að fara ekki EU.

Það er mjög einfalt að Frakkar eða öllu heldur Franskiherinn er eitthvað sam maður vill ekki vera nálægt þegar hætta er á ferðum saman ber hvernig fór með Hollensku hermennina í fyrrum Jukoslaviu.
mbl.is Saka Frakka um aðild að þjóðarmorði í Rúanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælum!

Er ekki kominn tími til að við förum og mótmælum sóðunum í Saving Iceland sem erum með sóðalegar tjaldbúðir á fallegum stað á Hellisheiði og stunda þar utanvega akstur og allskonar náttúruníð.  Væri kannsi ráðið að hlekkja sig við tjaldbúðirnar þeirra og sjá hvort það yrði ekki allt vitlaust.
mbl.is Með aðgerðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn ekki með réttu ráði

Þetta sýnir best að Evrópusambandinu er stjórnað af fólki sem ekki er með réttu ráði, fólki sem þó það sé með langa skólagöngu að baki er algjörlega ómenntað og ófært um að setja síg í spor annarra og hvað þá að skilja náttúruna.
mbl.is ESB vill banna viðskipti með selaafurðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur borgar

Fjármálafyrirtækin fá endurfjármögunun á lánum til íbúðarkaupa hjá íbúðarlánasjóði, það er ágætt en en hvað með þá sem eru að borga af þessum lánum sem eru verðtryggð og hækka núna sem aldrei áður.  Væri kannski rétt að ríkisstjórnin tæki sig til og klippti út verðbætur á íbúðarlánum fyrir árið 2008 og þá auðvitað bæði hjá íbúðarlánasjóði og einnig hjá bönkunum, en það má leiða að því líkum að þeir eigi þó nokkuð stóran þátt í hversu verðbólga á Íslandi er mikil núna.
mbl.is Íbúðalánasjóður endurfjármagnar húsnæðislán fjármálafyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski er þetta gömul saga og ný.

Einhvern vegninn held ég að margir hér á landi horfi upp og flauti við lestur á þessari frétt.
mbl.is Fylliraftur tók þátt í brunaútkalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 70791

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband