Hvað er að Árni?

Hvað er að því að veiða hval Árni?  Ekki er hann í útrýmingarhættu, hefur sennilega aldrei verið meira af honum.  Er það kannski helst vegna þess að þetta skaffar þér og þeim umhverfisverndarsamkökum sem þú ert í tekjur svo þið getið verið að leika ykkur í því sem ykkur þykir gaman án þess að taka neina ábyrð á einu né neinu?

Það er líklegt að ein helsta ástæða þess að ekki er hægt að byggja upp fiskistofna hér við land sé offjölgun hvala sem sporðrenna eihverjum milljónum tonna af sjávarfangi árlega.  Og í stað þess að við getum minnkað hungur í heiminum þá eyðum við púðri í að vernda stofna sem eru þegar orðnir of stórir eins og seli og hvali.  Þó ESB hafi samþykkt að vera á móti hvalveiðum og USA líka þá þýðir það ekki að það sé rétt ákvörðun heldur að "lobbyismi" umhvervisverndar samtaka hefur tekist, en eru þau að stunda umhverfisvernd eða umhverfishryðjuverk?  Svarið er sennilega það síðara því þeir eru að söðva eðlilega sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og það engöngu vegna eigin peningalegra hagsmuna.  Það væri gaman að einhver tæki sig til og rannsakaði hversu miklar mútur umhverfisvernar iðnaðurinn hefur greitt til stjórnmálamanna í ESB og USA.


mbl.is ESB: Hvalveiðar þvælast fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta skildi nú ekki vera arðsemiskrafan.

Getur verið að það hafi ekki verið við strafsmennina að sakast heldur hafi þeir verið of fáir til að dæmið skilaði arði en væri samt ekki of dýrt!!!!

 


mbl.is Látin kona lá afskiptalaus í klukkutíma á biðstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki sama Jón og séra Jón

Kristján Möller að kaupa atkvæði fyrir peninga almennings, eða hvers vegna þurfa Hvalfjarðargöng að borga sig að fullu en Vaðlaheiðargöng bara að hálfu?

Er það vegna þess að Möllinn er að tryggja sér atkvæði?


mbl.is Greiðri Leið heimilt að ganga til viðræðna við samgönguyfirvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálamönnum er ekki treystandi.

Það er þannig í dag að stjórnmálamenn eru hættir að vita hvað lýðræði er, það að sé hægt að koma svona lögum í gegnum Sænskaþingið með 4 atkvæðum er í raun hneyksli sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að 142 þingmenn greiddu lögunum atkvæði sitt af 349 þingmönnum á Sænskaþinginu.  Ég veit að það voru bara 138 á móti en 69 greiddu ekki atkvæði eða mættu ekki þannig að það má segja að 207 þingmenn treystu sér ekki til að samþykkja lögin, má þá ekki segja sem svo að í raun sé þeim hafnað.

Þessi sama aðferð er höfð uppi á öllum þjóðþingum vesturlanda en er hún ekki röng er ekki réttara a.m.k helmingur þeirra sem sitja á þingi séu fylgjandi þeim lögum sem sett eru og í sumum tilfellum 70% (þá er mér hugsað til þess meirihluta sem núverandi ríkisstjórn er með hér á landi) til að tryggja það að stjórnmála menn misfari ekki með vald sitt.


mbl.is Svíar mótmæla hlerunarlögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtök ferðaþjónustunnar!!

Hvernig er það eru þau ekki aðilar að Samtökum atvinnulífsins sem fara með samnings umboðið fyrir Flugstoðir OHF?  Þannig væri ekki nær Erna að þú talaðir við þína menn þar og segðir þeim hvaða hagsmunir eru í húfi og drífa sig að semja.  Það er rétt að flugumferðarstjórar hafa það ágætt með um 800 þúsund í meðallaun á mánuði skv. Forstjóra Flugstoða og þá með 18 tímúm í á aukavakt á mánuði og vaktaálagi þannig að mánaðarlaunin eru þá rúm 400 þúsund án yfirvinnu og vaktaálags.  Sem er ekki slæmt en kannski bara sétt með rétt sómasamleg laun án þess að vera á sjáltektarskútunni eins og margir af forustumönnum SA.
mbl.is Hafa ferðaþjónustuna í hendi sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman væri að vita

Hversu mikið kostaði þessi aðgerð miðað við þá styrki sem björgunarsveitirnar fá frá ríkinu?
mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski að hann geri það þá sjálfur!

Úr því að þetta er svona auðveltt þá gerir hann það kannski bara sjálfur í sjálfboðavinnu og tekur líka á sig ábyrð á því tjóni sem bjössi kann að valda meðann hann er í hanns umsjá?


mbl.is Vill nefna björninn Ófeig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Evrópusambandið hugsanlega að verða ólöglegt.

Það er furðulegt hvernig stjórnmálamenn reyna að þvinga auknum samrauna Evrópu í gegn án þess að leyfa fólki að taka til þess afstöðu lýðræðislega.

Og hvað er viðkvæðið?  Jú kjósendur hafa ekki vit á þessu og geta þess vegna ekki tekið upplýsta afstöðu til sambandsins og þess vegna er best að láta okkur stjórnmálamennina um þetta, því við vitum hvað öllum er fyrir bestu.  Þetta er auðvitað í besta falli hroki manna sem völd hafa stigið til höfuðs.  En í raun valdarán og brot á lýðræðilegum leikreglum viðkomandi ríkja.  Já ég veit að þeir eru búnir að breyta reglunum til að geta gert þetta en er það löglegt í raun.


mbl.is Cowen krefst samstöðu með Írum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm átti Karl að borga?

Karl annar konungur Englands og Karl Bretaprins eru held ég ekkert skildir og þar sem þingið (Oliver Cromwell) dæmdi hann til dauða og tók hann af lífi þá var það sennilega þingsins að borga. Devil
mbl.is Karl prins greiddi 350 ára gamla skuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er umhverfisvernd?

Er það umhverfisvernd að veiða ekki hvali eða er það kannski að vera umhverfisböðull að gera það ekki?  Því oft er nýtni það sem þarf an ekki verndun sem veldur offjölgun.


mbl.is Greiða ekki lengur atkvæði með hvalveiðiþjóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 70792

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband