Hér er villa svo um munar

"Borgarstjórnarfundi í Reykjavík var í dag í fyrsta skipti í sögunni frestað vegna óláta á áheyrendapöllum."  Þetta er einfaldlega alrangt því 9 móvember 1932 var bæjarstjórnarfundi í Gúttó hleypt upp og lögregla undir stjórn Hermanns Jónssonar reyndi að ryðja húsið en fór hallloka fyrir múgnum.

Sorry Dagur það er bara ekki hægt.

Málið er að lög um sveitastjórnir bjóða ekki uppá þann möguleika að kjósa á miðju kjörtímabili þannig að það verður að finna lausn með þeim flokkum sem þarna eru, þær sem reyndar hafa verið hingað til virka ekki og þessi mun sennilega ekki virka heldur því miður.  En Dagur kannski var málið þegar þið gerðuð fyrri byltinguna að þið völduð ekki réttan flokk til að gera hana með, kannski hefði samfylking og sjálfstæðisflokkur virkað betur.
mbl.is Dagur: Í dag ætti að kjósa í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sama hver leikur leikinn

Það er skrítið að í pólitík er ekki sama hver gerir hvað, leikurinn sem leikinn var í borgarstjórn núna er sá sami og fyrir 100 dögum og var í raun fyrirsjáanlegur, en af því að hann er ekki leikinn af réttum hópi þá verða allir vitlausir.  Það er svo annað mál að það má búast við svipuðu aftur í Reykvík eftir einhverntíma vegna þess hvað þetta er allt veikt. Og í raun eru bara tveir leikir í stöðunni til að koma á stöðugleika og það er sjálfstæðisflokkur og samfylking eða sjálfstæðisflokkur og VG en hvort það verður eða gengur það er svo annað mál.  En eftir þetta þá er bara eitt að segja fulltrúalýðræðið er gengið sér til húðar og við verðum að finna annann flöt á lýðræðinu sem helst útilokar skipulagða flokka.

Og svo er rétt að minna á eitt að Reykjavíkurflugvöllur er ekki einkamál Reykjavíkur og það er nauðgun á lýðræðinu ef umræðan um hann og ákvörðun verður ekki á landsgrundvelli, eða á hátæknisjúkrahúsið að fara úr Reykjavík?, til dæmis til Akureyrar?


mbl.is Ólafur kjörinn borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með vísitöluna

Oft er talað um að hér á landi sé mesta verðbólga í Evrópu og hún er það eins og við reiknum hana með húsnæðisverð inni í vísitölunni en ef við reiknum hana eins og önnur evrópulönd þá er hún einna lægst, og ef vísitalan á húsnæðislánunum væri samkvæmt þessari samræmdu vísitölu þá værum við líka með frekar lága vexti á húsnæðislánum hér.  Hvernig væri að taka á þessu en ekki þessum seðilgjöldum sem er í raun það eina sem verið er að taka á og jú fit ránið.


mbl.is Seðilgjöld heyri sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasteingamat hækkar

Það verður að fara stemma stigu við þeirri hækkun fasteignagjalda sem sjálfvirk framreiknun FMR hefur í för með sér og setja á hana þak sem fylgir hækkun launataxta það er engavegin sangjarnt að fasteignaskattar til sveitafélaga hækki eftir hækkun eingna á markaði sem er mun meira en alamennar launahækkanir.  Það að einhver nefnd geti unnið svona er ekki réttlætanlegt og nálgast að vera glæpur. 
mbl.is Fasteignamat hækkar um 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Þó hópurinn sé lítill þá eru þetta menn sem byggja á skoða málin með gangrýnum huga ekki að hlaupa eftir meirihlutanum, og eins og Ibesn segir í þjóðníðingum þá hefur meirihlutinn alltaf rangt fyrir sér þegar kemur af málefnum sem varða afkomu.

Þó ég trúi ekki á að hnattræn hlýnun sé að mannavöldum þá veit ég að við verðum að hugsa okkar gang varðandi náttúruauðlindir og minnka hina hrikalegu neyslu sem á sér stað.

En að eyða peningum í að berjast gegn hnattrænni hlýnun af mannavöldum er í raun glæpur gegn mannkyni og ætti að rannska sem slíka, og í því dæmi er Al Gore í hlutverki Adolfs Hitler í að beina augum manna frá hinu raunverulega vandamáli sem er offjögun mannkyns að einhverjum ætluðum gróðurhúsaáhrifs vandamálum, en þetta er álíka og Hitler kenndi gyðingum um kreppuna í Þýskalandi sem í raun var vanhæfum stjórnmálamönnum að kenna, sem trúðu því að markaðurinn gæti lagað allt.

Það er eitt sem er vitað um loftslag á jörðinni og það er að það er alltaf að breytast venga nátturulegra áhrifa og þá sérstaklega vegna áhrifa sólar sem er jú sá orkugjafi sem skapað hefur beint alla  þá orku sem við erum að nota á jörðinni fyrir utan jarðvarma, en hann má rekja til myndunar sólkerfisins, og svo auðvitað kjarnorku.  Frekar litlar breytingar í geislun sólar geta haft mikil áhrif á hita á jörðinni.  Það sem margir vísindamenn hafa gert er að ætla að hitinn í upphafi iðnbyltingar sé eitthvað norm og mest öll hlýnun síðan þá sé vegna athafna okkar mannanna og breytingar á sólinni hafi lítil eða engin áhrif, ef við horfum á málið frá skynsemi þá er orkulosun mannkyns aðeins brotabrot af þeirri orku sem lendir á jörðinni frá sólu þannig að með skynsemi má segja að sólin hefur meiri áhrif en við. 

Varðandi gróðurhúsalofttegundir þá hefur enginn getað sýnt framá að þær virki í gufuhvolfi jarðar eins og haldið hefur verið fram og þær fáu tilraunir sem gerðar hafa verið benda til að svo sé ekki heldur hafi vatnsgufa og skýjamyndun þar yfirgnæfandi áhrif.

Og verðandi hlýnun Jarðar má benda á að Mars hefur verið að hlýna á sama hátt.


mbl.is Hafna loftslagsbreytingum af mannavöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar kólnunin er byrjuð!!!!

Svona eru stjórnmálamenn þegar kólnun jarðar hefur hafist fara menn að semja um að vinna gegn hitnun með því að minnka útblástur á gróðurhúsalofttegundum þá aðalega CO2 sem skiptir næstum engu máli í jöfnunni, enda byggist öll þessi umræða á tilfinningum en ekki vísindum því það hefur aldrei verið sýnt með tilraunum hvernig CO2 virkar í andrúmsloftinu heldur bara giskað.  Og að sólin hafi einhver áhrif vilja "vísindamennirnir" í IPCC ekki horfa á, enda eru margir búinr að gefast upp á málinu og á það einkum við um þá sem stunda athuganir og rannsóknir ekki bara skriftir.

Þórunn lofar þú okkur því ekki að ef kólnun verður farin að sjást fyrir næstu Alþingiskosningar þá sleppir þú því að bjóða þig fram?


mbl.is ,,Sögulegt samkomulag”
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vondar móttökur

Mál Erlu vekur athygli með réttu og Ingibjörg Sólrún gengur í málið með réttu.  En fyrir ári lennti ung kona með tvö lítil börn í svipuðu atviki í Minniapolis og það fyrir að hafa framfyrir í röð vegna þess að hún var að missa af tengiflugi vegna þess að flugi Flugleiða hafði seinkað.  Konan hafði fengið leyfi hjá hópnum sem hún fór framfyrir til þess en þau voru samt aldrei spurð hvort svo hefði verið, sem sýnir að öryggis og landamæravarsla í USA er ekki höndum starfsfólks sem veldur strafinu.  Einnig má færa að því líkur að öryggisvarsla sem þessi valdi miku fleirri saklausum vandamálum en þeim sem hún bjargar vegna þess að hún stoppar hættulega einstaklinga, þannig má segja að gagnið sem hún geri sé minna en ógagnið en það er bara ekki talað um ógagnið opinberlega.

Og ekki hélt ég að ég ætti eftir að segja þetta um íslenskan stjórnmálamann en Ingibjörg Sólrún haltu þessu máli til streitu því þessu þarf að breyta.

En það er annað og það er okkur nær, hvernig er unnið í svona málum hér á landi?  Ef við skoðum tildæmis komu Hells angels frá Noregi, fengu þeir aðstoð lögfræðings? var meðferðin sangjörn?

Ég er ekki að segja að mig langi að fá meira af skipulögðum glæpum til landsins, en ég er á móti því að hryðjuverkamenn og glæpamenn vinni í stríðinu með því að svo kölluð "Öryggisgæsla" verði almenningi fjötur um fót.  Það eykur ekki öryggi að auga öryggisgæslu og allra síst ef hún er vopnuð, ofbeldi er nefnilega alltaf ofbeldi hvort sem því er beitt af hryðjuverkamönnum, harðstjórnum eða lýðræðislega kjörnum ríkisstjórnum eins og okkar, sem við "vitum" að ér kjörin með "besta" kerfi í heimi.


mbl.is Mál Erlu Óskar vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandi heilbrigðiskerfisins

Vandi heilbrigðiskerfisins er fyrst og framst sá að embættismenn í heilbrigis- og fjármálaráðuneitunum hafa notað þá aðferð til marga ára að veita vísvitandi of litlum peningum til þessa málaflokks. 

Síðan eru forstöðumenn stofnanna teknir á beinið fyrir að fara framúr fjárveitingum og hótað öllu illu, jafn vel brottrekstri og málshöfðun, því þeir séu að brjóta lög, það er fjárlögin. 

En málið er að það eru fyrst og fremst þessir embættismenn fjármála- og heilbrigðisráðuneita sem eru að brjóta lög með því að koma með vísvitandi rangar tillögur í fjárlagafrumvarpinu, og það er vægast sagt undarlegt að ríkisendurskoðun hafi ekki gengið fram af meiri hörku gagnvart þessum mönnum, sem vitaskuld ætti að víkja úr strafi fyrir vankunnáttu og vanrækslu.

Á meðan ríkið að borga dýr yfirdráttarlán til að halda rekstrinum gangandi og eignir fá ekki það viðhald sem þarf því menn reyna allt til að sjúklingarnir fái sitt


mbl.is Yfirlæknar leggja til sparnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband