Lélegir fjölmiðlamenn.

Það er ekki einleikið hversu fjölmiðlamenn vinna fréttir illa. Í þessari frétt hnýt ég um 22 mm vélbyssuna; í fyrsta lagi er byssa 20 mm og yfir talin fallbyssa, og í öðrulagi þá á Bandaríska strandgæslan ekki vopn sem er 22 mm, þetta gæti verið 12,7 mm Browning M2 eða 20 mm Orkleon eða 25 mm MK 38 / M242  eða 40 mm Bofors eða 57 mm Bofors jafnvel 76 mm OTO Melara.

Þetta segir bara eitt ef ekkert er að marka það sem má með auðveldum hætti finna á wikipedia hvað þá með hitt.


mbl.is Japönsku draugaskipi sökkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta vita allir en væri ekki nær að gera eitthvað í nútímanum?

Þetta er bara söguleg staðreynd, hræðilegt mál en búið og gert.  Væri ekki nær en að eyða tíma Alþingis í þetta að gera eitthvað fyrir fólkið í landinu?  Þar er af nógu að taka en ekkert gert, enda viðist það einhvern veginn verða þannig að þingmenn hugsa mest um að koma sér í fjölmiðla með mál sem eru í raun algjör aukaatriði en forðast að takast á við hin raunverulegu verkefni.
mbl.is Vilja viðurkenningu á þjóðarmorði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangt Mörður!!!!!

Frumvarpið kostar ekki 13 milljarða, heldur minnkar það skattpíningu landsmanna um 13 milljarða sem er allt annað mál.

Þetta mætti svo spara fyrir ríkiskassan með því að hætta að borga ykkur sem eruð ráðherrar og þingmenn kaup enda vandséð að þið séuð að vinna fyrir fólkið í landinu.  Jafnframt má hætta að greiða styrki til stjórnmálaflokkanna sem eru jú ekki heldur að vinna fyrir almenning.


mbl.is Frumvarpið kostar 13 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er makríll kannski of lítið veiddur?

Er það kannski vegna of lítilla veiða á makríl að svartfugli er að fækka vegna fæðuskorts?


mbl.is Brýnt að ná samningi um makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmm það er bara svona.

Þetta er gott dæmi um fullyrðingu sem ekki neitt á bakvið.

Varðandi tölurnar úr Columbia ánni þá eru menn ekki á einu máli þar.


mbl.is Virkjanir eyða laxastofninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta siðareglur brotið mannréttindi?

Getur verið að siðareglur sem hópar og félög setja sér brjóti á rétti félaga til að hafa skoðanir og ræða þær?

Er það virkilega þannig að krafan um umburðarlyndi sé orðin þannig að hún sé sjálf óumburðarlynd?

Er það virkilega þannig að minnihluta hópum sé gert mis hátt undir höfði eftir því hvort minnihlutahópurinn er pólitískt "réttur" eða "rangur"?

Persónulega er ég ósammála Snorra um samkynhneigð en ég er líka ósammála þeim sem vilja banna honum að hafa sína skoðum á samkynhneigð.  En er nokkuð að því að fólk viti að það er til fólk sem hefur þessa skoðun?

 Í mínum huga er tjáningarfrelsið eitt af því heilagasta sem til er og í raun eru ekki til neitt sem heita rangar skoðanir, og við skulum ekki gleyma að ritskoðun er bönnuð samkvæmt stjórnarskrá og ritskoðun má ekki í lög leiða.

Það að hóta mönnum starfsmissi fyrir að tjá skoðanir sínar er gróf tilraun til ritskoðunar og sýnir hvað íslenskt þjóðfélag er að verða "nasistískt".

Ég veit að Snorri hatar ekki samkynhneigða þó að hann telji samkynhneigð synd, en mér sýnist fullt af fólki hata Snorra fyrir að telja samkynhneigð synd, sennilega er meira hatur í skrifa á móti Snorra en í skrifum hans.


mbl.is Erfitt að draga línuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði kannski verið skárra en að loka heilbrigiðiskerfinu.

Ég hef ekkert á móti menningu og listum en þær koma samt sem áður langt á eftir viðbragðsaðilum og heilbrigðiskerfinu, þannig er það nú bara.


mbl.is AGS vildi loka Þjóðleikhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir Svandís núna!!!!

Þetta er auðvitað klárt brot á náttúruverndarlögum og hefði átt að fara í umhverfismat Devil, spurning hvort það varður ekki að leggja stjórnvaldssekt á sveitarfélagið fyrir að hafa ekki séð þetta fyrir og gert ráðstafanir.

Væri alla vega eitthvað sem nætti búast við á þeim bænum.


mbl.is Iðuklettur fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syndin er að segja frá.

Þetta er bara eins og alltaf.  Það er ekki synd að fara illa með þessi munaðarlausu börn en það er synd að segja frá því.


mbl.is Tyrkir ákæra Söru Ferguson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mörður núna lýgur þú.

Miðað við áhuga forustumanna ESB á því að fá okkur inn þá myndi ég halda að það væri ESB sem væri að gana í Ísland en ekki öfugt, en þegar kemur að Samfylkingunni þá er auðvitað rétt að Samfylkingin er að ganga í ESB en ekki öfugt.  Reyndar á ég alltaf erfitt með að skilja hvers vegna flokkur sem telur sig vera jafnaðarmannaflokk vill gagna í hið aristokratíska ESB, en skannski má skilja það á þann veg að Samfylkingin sé farin að halda að krati á íslensku standi fyrir aristokrati, hver veit.
mbl.is ESB ekki að sækja um á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

einarstrand

Höfundur

Einar Þór Strand
Einar Þór Strand
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband